Viðurkenndur bókari - Opni háskólinn í HR - Fjarnám

Námið skiptist í tvær lotur:

Reikningshald: Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning nemenda á meginreglum reikningshalds og því lagaumhverfi sem bókhald og reikningsskil eru byggð á. Mikil áhersla er lögð á notkun Excel.

Skattskil og upplýsingakerfi: Námskeiðið veitir nemendum almenna innsýn í skattalög og reglur varðandi skattlagningu fyrirtækja og einstaklinga. Lögð er áhersla á að bæta þekkingu nemenda á upplýsingaskyldu og verklagi varðandi virðisaukaskatt og aðra vörsluskatta. Einnig verður farið yfir grunnatriði innra eftirlits og öryggis í upplýsingakerfum.

Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi með sér tölvu í Excel hluta námskeiðsins. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð nemenda.

Upptökur af fyrirlestrum verða birtar inn á samskiptavef nemenda daginn eftir að fyrirlestrar fara fram. Tvær staðarlotur verða haldnar í Opna háskólanum í HR yfir námstímann. Staðarloturnar verða ekki teknar upp. 

Hæfniviðmið

Undirbúningur fyrir próf á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis til viðurkenningar bókara, skv. 43.grein laga nr. 145/1994 um bókhald.

Fyrirkomulag

Tími: Kennt verður 2-3x í viku, á virkum dögum, frá kl. 16:30 - 20:30. Fyrirlestrar verða á mánudögum / miðvikudögum. Dæmatímar eru á þriðjudögum / fimmtudögum. Nánari upplýsingar er að finna í kennsluáætlun. Kennsla fer fram í fyrirlestraformi og í dæmatímum, þar sem farið er í verklegar æfingar í Excel. Skynsamlegt er að gera ráð fyrir að þurfa að taka frí frá vinnu á helstu álagstímum. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi með sér tölvu í Excel hluta námskeiðsins.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Haustönn 2018
  • Lengd
    132 klst.
  • Umsjón
    Lúðvík Þráinsson, lögg.endursk. hjá Deloitte, Helga Hauksdóttir, lögfræðingur hjá Ernst & Young, Emil Viðar Eyþórsson og Páll Daði Ásgeirsson, lögg.endursk. hjá Deloitte, Tryggvi R. Jónsson, deildarstjóri rekstrarlausna Advania á Akureyri
  • Staðsetning
    Opni háskólinn í HR, Menntavegi 1, 101 Reykjavík, Mars-álma, 2. hæð.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námið er einkum ætlað starfsfólki bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og sjálfstætt starfandi bókurum.
  • Gott að vita
    Öðrum en aðildarfélögum Starfsmenntar er bent á að skrá sig hjá Opna háskólanum í HR, s. 599 6300.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
20.08.2018Viðurkenndur bókari00:0000:00Opni háskólinn í HR.