Jafnlaunastaðall: I. Kynning á jafnlaunastaðli og inngangur
Skráningu (fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar) lýkur 6.jan. kl.10:00.
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Samkvæmt lögunum skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85.
Með innleiðingu hans geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Á námskeiðinu er jafnlaunastaðallinn kynntur og farið yfir helstu forsendur og kröfur fyrir innleiðingu jafnlaunakerfis. Með innleiðingu staðalsins taka fyrirtæki og stofnanir upp skipulagðar aðferðir til að vinna að því að tryggja jöfn kjör til kvenna og karla fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Fjallað er um hver séu réttu skrefin í innleiðingu staðalsins, hverju þarf að huga að, hvað þarf að gera og hvernig tryggja megi kerfisbundna innleiðingu og að kröfur séu uppfylltar. Farið er yfir hvernig skipuleggja megi innleiðingu og sýnd eru dæmi um tékklista, verk- og tímaáætlun.
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að búa yfir nauðsynlegri þekkingu til að hefja vinnu við innleiðingu jafnlaunastaðalsins á sínum vinnustað.
Hæfniviðmið
Að öðlast skilning á jafnlaunastaðlinum (ÍST 85:2012) og markmiðum hans.
Að þekkja helstu forsendur og kröfur fyrir innleiðingu jafnlaunakerfis.
Að öðlast aukna færni til að gegna leiðandi hlutverki við innleiðingu jafnlaunastaðalsins.
Að fá tækifæri til að kynnast og tengjast öðrum í sömu sporum varðandi innleiðingu staðalsins.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.
Helstu upplýsingar
- TímiMánudaginn 20. jan. kl. 13:00 - 16:00.
- Lengd3 klst.
- UmsjónGuðný Einarsdóttir er sérfræðingur hjá kjara- og mannauðssýslu ríkisins í fjármála-og efnhagsráðuneytinu.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað forstöðumönnum, mannauðsstjórum, gæðastjórum og öðrum þeim sem ætlað er að stýra eða gegna ábyrgðarhlutverki við innleiðingu .
- Gott að vitaStarfsmennt greiðir námskeiðið fyrir aðildarfélaga. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
- MatMæting.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(at)smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 20.01.2020 | Jafnlaunastaðall: I. Kynning á jafnlaunastaðli og inngangur | 09:00 | 12:00 | Guðný Einarsdóttir er sérfræðingur hjá kjara- og mannauðssýslu ríkisins í fjármála-og efnhagsráðuneytinu. |