Viðurkenndur bókari - EHÍ
Endurmenntun HÍ býður nú nám til undirbúnings fyrir próf til viðurkenningar bókara á vegum Atvinnuvega- og nýsköpurnarráðuneytisins skv. 43. grein laga nr. 145/1994 um bókhald.
Námið er eitt misseri og skiptist í þrjá hluta: Reikningshald, skattskil og upplýsingatækni ásamt raunhæfu verkefni úr efnisþáttum I. og II. prófhluta. Námið má fá metið til 6 ECTS eininga á grunnstigi háskóla, að því gefnu að þátttakandi uppfylli inntökuskilyrði HÍ ásamt því að ljúka öllum prófhlutum til viðurkenningar bókara með tilskilinni lágmarkseinkunn.
Hæfniviðmið
Undirbúningsnám á háskólastigi. Námið undirbýr nemendur fyrir próf á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis til viðurkenningar bókara, skv. 43.grein laga nr. 145/1994 um bókhald.
Fyrirkomulag
Kennsla hefst í byrjun ágúst og lýkur í desember.
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 16:15- 20:15 og lau. 9:00 - 13:00.
Þeir sem skrá sig hjá Starfsmennt þurfa einnig að skrá sig hjá Endurmenntun HÍ.
Helstu upplýsingar
- TímiHaustönn 2019.
- Lengd124 klst.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Ísslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámið er einkum ætlað þeim sem starfa eða hafa hug á starfi á sviðum bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og stofnana.
- Gott að vitaÖðrum en aðildarfélögum Starfsmenntar er bent á að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, s. 525 4444.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 19.08.2019 | Undirbúningsnám - Viðurkenndur bókari | 00:00 | 00:00 | Endurmenntun Háskóla Íslands |