Endurmenntun atvinnubílstjóra - Skyndihjálp
ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi
Markmið námsins er að þátttakendur tileinki sér undirstöðuatriði skyndihjálpar og geti brugðist rétt við í neyðartilfellum. Farið er yfir fjögur skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita viðeigandi aðstoð. Lögð er áhersla á að þátttakendur sýni ábyrgð á slysstað og geti tekið frumkvæði að stjórnun þar til fagaðstoð berst.
Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra
Hæfniviðmið
Að þekkja undirstöðuatriði í skyndihjálp.
Að þekkja 4 skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp
Að geta veitt skyndihjálp í neyðartilfellum
Að sýna ábyrgð á slysstað og taka frumkvæði við stjórnun á vettvangi í neyðartilfellum
Fyrirkomulag
Hluti námskeiðs er netnámskeið og að loknu verklegu námskeiði er tengill sendur á netnámskeiðið.
Helstu upplýsingar
- Tími20. apríl 2026 kl. 17.00-20.30
- Lengd3.5 klst.
- UmsjónÖkuland
- StaðsetningFjölheimar, Tryggvagötu 13, Selfossi
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D og eru aðildarfélagar Starfsmenntar
- Gott að vita
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda
Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum
- MatAð ljúka námskeiði
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 20.04.2026 | Skyndihjálp | 17:00 | 20:30 | Ökuland |